Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Útrásin virðist ætla að skila okkur lakari lífskjörum

Undan farið hef Ég vitnað í menn sem hafa varað við þeirri ofsalegu þenslu sem orðið hefur á undanförnum árum.
Aftur ætla ég að vitna í Vilhjálm Bjarnason framkvæmdastjóra Félags fjárfesta. En þann 18. september lýsti hann á mjög greinargóðan hátt miklu sameiningarferli gamalgróinna fyrirtækja svo sem Flugleiða, Eimskipa og fleiri fyrirtækja í tímamótaviðtali við Gunnar Gunnarsson rithöfund og fréttamann hjá Ríkisútvarpinu. Viðtalið er hér í hljóðskrá úr Spegli Ríkisútvarpsins frá 18. september.
Og nú er einum degi styttra í að sólin fari að ´hækka á lofti.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Þjóðin veit hverjir eru ábirgir fyrir fjármálaósköpunum!

Ég játa að Geir Haarde forsætisráðherra á virðingu mína alla fyrir það hvernig hann tilkynnti okkur um það mammonsóveður sem nú dynur á. Í dag hefur umræðuefnið vart verið annað en þetta óveður. En fólk spyr: Hver séu laun þessara hálaunuðu bankamanna sem hæst trjóna í launaskalanum? Margir hrylltu sig þegar Sigurður Einarsson starfandi stjórnarformaður Kaupþings mætti í kastljósi Sjónvarpsins til þess að gefa einhverl "landsföðurleg" ráð. Það dylst engum að Sigurður hefur staðið sig mjög vel með Kaupþing. En réttlætir það um þrítugföld laun hanns á við þokkalega launað fólk? Lækka launin hjá honum og öðrum ofurlaunumgum? Af hverju varpa fjölmiðlar þessa lands ekki ljósi á ofurlaun þessara manna? Af hverju eru þeir látnir halda áfram störfum sínum og ofurlaunum? Ef hækka ætti einhvern í launum, ætti þá ekki að fimmtugfalda laun ríkisstjórnarinnar vegna þess mikla álags sem öllu þessu fylgir? Í tónlistarbransanum tíðkast það stundum að hljómsveitarstjórar hafi tvö föld laun á við hina í hljómsveitinni. Geir Haarde er góður söngvari og ætti þau vafalaust skilið. Spyr sá sem ekki veit, enda kannski fjármálabjáni. Ég sagði frá viðtali við Vilhjálm Árnason framkvæmdastjóra Félags fjárfesta í norska sjónvarpinu í gær. Nú rétt áðan í Speglinum var viðtal við jhann ásamt Jóni þórissyni hjá VBS-fjárfestingabankanum. Ég læt hljóðskrá fylgja með þessum pistli. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar verða vonandi til þess að sökudólgar muni dregnir fyrir dóm. Það er álíka fáránlegt að gera það ekki einsog ef einhver dræpi mann þá yrði sagt að ekki skuli horfa aftur heldur til framtíðar. En það fer senn að birta, sólin hækkar á lofti eftir rúma tvo mánuði.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Efnahagsóveðrið hér er vegna græðgi fárra einstaklinga í íslenska fjármálakerfinu

Í dag var í norska sjónvarpinu birt viðtal við Vilhjálm Bjarnason sem er einhver fróðasti maður um íslenskt fjármálalíf.
Hann hélt því blákalt fram að allur glundroðinn sé vegna græðgi 20 til 30 manns í íslenska bankakerfinu.
Vilhjálmur er m. a. formaður félags fjárfesta ef ég man rétt. Hann útskýrði fyrir nokkrum dögum mjög vel í Spegli Ríkisútvarpsins hvernig þetta hefði allt saman undið upp á sig. Hver átti hvað, hver eignaðist það síðar og seldi og svo allar sameiningarnar og svo framvegis. Vafalaust má finna þennan spegil á vef Ríkisútvarpsins.
Nú þegar þetta er skrifað er verið að ræða neyðarlög á Alþingi þar sem rætt er um m. a. að ríkissjóðir yfirtaki þá banka sem fari í þrot. VErða þessir fjárgræðgismenn látnir sæta ábirgð gerða sinna?
Nú hefur sumum þeirra tekist að forða fjármunum sínum t. d. til Noregs. Eru þeir hultir þar?
Hvað verður gert til þess að koma böndum á þessa menn sem sumir hafa skapað sér árslaun fleiri hundruða fólks?
Það sem athyglisverðast er í öllu þessu að einkavæðingarstefnan hefur borið algjört skipbrot.
Nú er að taka á.

Er Davíð orðinn blóraböggull?

Mér varð illa kalt í morgun þar sem ég dormaði undir sænginni minni og hlustaði á fréttirnar. Landið kuð líklega verða olíulaust ef ekkertverður að gert. Nú er hamast á Davíð. Getur hugsast að menn noti hann sem blóraböggul vegna efnahagsástandsins eða er Davíð að fá í hausinn allt ráðríki sitt og það sem einhverjir kalla frekju eða ofríki? Eru sumir svona reiðir af því að þeir hafa misst megnið af kvótapeningunum sem þeir lögðu í Glitni en eru í raun sameign þjóðarinnar? Allt frá því að ég hitti Geir forsætisráðherra fyrst hefur hann virkað á mig sem ljúfmenni og í ljós hefur komið að fátt virðist hagga honum hvað jafnaðargeðið varðar. En hefur svona mjúkur maður einsog Geir kraft og þor til þess að grípa til þeirra aðgerða sem þarf? Skyldu of margir vinir hans vera í æðstu stöðum svo að erfitt sé fyrir hann að hrófla við þeim? Hefur dýralæknirinn fjármálaráðherrann þekkingu til þess að ryðjast fram á völlinn og skera upp fjármálakerfið? Eru hagsmunatengslin slík að enginn þorir að segja neitt til þess að eiga það á hættu að styggja einhvern eða særa annan því að allt eru þetta vinir í sterku hagsmunabandalagi? Hver þorir að reka Davíð? Eða er þörf á að reka hann? Og hver þorir að gera hvað? Mun Samfylkingin líða fyrir það að vera svona fylgispök í haldinu? Af hverju er ekki skorið upp í Glitni eign okkar allra síðan á mánudag og t. d. starfssamningar ofurlaunamanna gerðir ógildir? Og hvað með hina bankana? Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og seðlabankastjórar eru láglaunamenn í samanburði við þá sem hafa skammtað sér eða verið skammtað ofurfjármagn fyrir það eitt að mæta og stunda störf sín.

dalakofinn frábær útvarpsþáttur

Stundum fer ég á vefsíðu Ríkisútvarpsins og hlusta þar á útvarpsþætti sem ég hef annað hvort ekki náð að hlusta á eða gleymt. Einn þeirra þátta sem vakið hafa athygli mína er Dalakofinn í umsjá Kristínar Einarsdóttur. Þessir þættir eru á þriðjudagsmorgnum eftir veðurfregnir. Kristín fjallar um samfélagið út frá ýmsum dægurlagatextum og gerir það´á bráðskemmtilegan hátt eins og henni er einni lagið. Hafi hún heila þökk fyrir bráðgóða ´þætti.

Þarf að aflýðvelda Ísland?

Á sunnudagskvöldið var hlustaði ég sem oftar á Andrarímur Guðmundar Andra Thorssonar í Ríkisútvarpi allra landsmanna. Þetta eru yfirleitt sérlega góðir þættir hjá Andra og stundum ekki hægt að sofna út frá þeim. Í áðurnefndum Andrarímum var flutt brot úr viðtali við Kristínu Geirsdóttur ef ég man rétt frá Langanesi. Kristín var jafnaldra móður minnar fædd árið 1908 en Einar Karl Haraldsson tók viðtalið fyrir 23 árum í þáttaröð sem hét Stefnumót við sturlunga. Talið barst að sjálfstæði Íslendinga og af hverju þeir misstu það. Þá kom Kristín með þá athyglisverðu kenningu að forfeður okkar hefðu ekki getað haldi sjálfstæðinu m. a. vegna þess að þá skorti fley og fagrar árar til þess að komast á milli landa og urðu því að treysta á útlenda menn, sérlega norðmenn til þess að flytja varning hingað. Nú hefur mjög skipt til hinns verra í þjóðarbúinu hvað hagsæld varðar. Viðskiptaráðherrann knýr á um evrópuumræðu. Forsætisráðherrann hefur kastað fram þeirri fullyrðingu að íslendingar gætu alveg eins tekið upp dollarann einsog evruna og færir rök fyrir því. Nú er þrengt svo að menningararfinum að sjálft Ríkisútvarpið þarf að fækka starfsfólki. Nógur var niðurskurðurinn fyrir og hvernig skal þá böl bæta? Afleiðing í dagskrárgerð verður sú að enn minna fé verður lagt í t. d. útvarpsleikhúsið sem hefur orðið að endurtaka æ ofan í æ sömu leikritin með stuttu millibili. Voru það hugsanleg mistök að fá sjálfstæði frá danska heimsveldinu á sinni tíð? Hefði verið nær að falla aftur í fang norðmanna? Væri ef til vill ráð til þess að bjarga öllu hér að Ísland yrði úthérað í norska ríkinu og yrði ofurselt lögum þess? Mér skilst að í norskum lögum sé áhersla lögð á verndun mállískna? Kannski gæti Reykjavík orðið höfuðborg Noregs af því að hér er upprunaleg tunga norðurlandaþjóðanna og germanna allra. Það skiptir hvort eð engu hvort höfuðborgin væri á Skandinavíuskaganum eða hérna efst uppi á toppnum af því að samgöngur eru orðnar svo góðar. Mér er sagt að norðmenn séu að endurnýja flugflota norska hersins. Þeir eiga digran olíusjóð og væru ekki í neinum vandræðum með að kippa hér öllu í liðinn. Þá gætu þeir haldið áfram að kalla Snorra Sturluson gamalnorskan ættaðan frá nyrsta héraði ríkisins Íslandi. Spyr sá sem ekki veit.

Eyjapistlar frá gosinu í Heimaey brátt aðgengilegir almenningi. Nokkur minningabrot

Þann 3. júlí verða liðin 35 ár síðan eldgosinu í Heimaey lauk. Vestmannaeyingar halda upp á þessi tímamót með goslokahátíð sem hefst á fimmtudaginn kemur úti í Eyjum og lýkur á sunnudag 6. júlí. Nú er dagskrá goslokahátíðarinnar komin á netið og óðum að taka á sig skemmtilega mynd. www.vestmannaeyjar.is

Þann 7. febrúar 1973 hóf göngu sína í Ríkisútvarpinu þáttur sem var kallaður Eyjapistill. Við Arnþór tvíburabróðir minn vorum rúmlega tvítugir þegar þetta gerðist og vorum skikkaðir til þess að sjá um þessa þætti. Alls urðu þættirnir 261 talsins, rúmlega 90 klst. Nú er búið að færa alla þá þætti sem til eru á stafrænt form og eru þeir varðveittir í Skjalasafni Vestmannaeyja. En í tilefni tímamótanna sem nú eru verða þættirnir settir á netið í tengslum við verkefnið Bygðin undir hrauninu sem má nú finna á www.heimaslóð.is.
Ég ætla að láta hér fylgja frásögn af því hver tilurð þáttanna var og skrifa fyrst og fremst út frá eigin brjósti.
Þegar gosið hófst, var móðir mín nýlega komin til Eyja, en við Arnþór höfðum verið heima í jólafríi og mamma hafði skroppið af gamni sínu með okkur suður að heimsækja ættingjana. Við bjuggum þá með systur okkar og mági í lítilli íbúð vestur í bæ í Reykjavík. Ég man eftir að um hálf tvöleytið um gosnóttina hringir síminn og Guðrún systir svarar. Hún hrópar í örvæntingu Það er farið að gjósa og svo hrópar hún: Mamma, mamma, komdu suður, komdu fljótt fljótt.
Við Arnþór og mágur okkar rukum fram úr og ég greip lítið segulbandstæki og setti við símann og tók hann af Guðrúnu og spyr hvað gangi á. Páll bróðir minn var í símanum og sagði: Það er aldeilis ástand hjá okkur núna, það er farið að gjósa. Ég vissi að Páll átti til grallaraskap og spurði hikandi hvort þetta væri satt. Hann kvað já við og ég heyrði gosdrunurnar í gegnum símann. Svo lýsti hann gosinu og ég hljóðritaði símtalið, sem er til í heild sinni. Svipaðar símhringingar fékk fjöldinn allur á fastalandinu.
Fljótlega var útvarp Reykjavík sett í gang, við fórum öll á fætur og biðum þess, sem verða vildi. Ég hringdi í nokkra gamla Vestmannaeyinga að segja tíðindin. Menn brugðust misjafnlega við. Vinur minn, Andrés Gestsson tók þessu með jafnaðargeði og spurði hvort ég hafi verið að skemmta mér. Ég varð ákafur við og sagði að það væri farið að gjósa úti í Eyjum. Andrés sagði það í góðu lagi og ég skyldi fara aftur að sofa. Svo hringdi hann rúmum tveimur tímum seinna í Guðrúnu systur til að athuga hvort ég hefði ekki örugglega verið að skemmta mér. Klukkan hálf fimm um morguninn höfðu nokkrir vinir hringt og komið á Fornhagann til okkar með lykla að íbúðum sínum, sem þeir sögðu okkur að ráðstafa. Flestir ættingjar úr Eyjum komu til okkar og taldist mér til að hátt í fimmtíu manns hafi verið hjá okkur, þegar mest var. Það var hringt út og suður og allir fengu samastað, sem betur fer. Ég stóð svo í því næstu daga með vinum mínum að taka á móti búslóð og reyna að koma henni fyrir, en eldri bræður mínir voru úti í Eyjum og gegndu mikilvægum störfum eins og allir, sem dvöldu þar.
Ég reyni ekki að lýsa atburðarás næstu daga, en skal nú víkja að þætti Ríkisútvarpsins.
Stefán Jónsson fyrrverandi fréttamaður var mikill vinur föður okkar Helga Benediktssonar athafnamanns í Vestmannaeyjum og við Arnþór höfðum kynnst honum mjög vel. Stefán var dagskrárfulltrúi hjá útvarpinu og kom með þá hugmynd að hafa sérstakan þátt, þar sem birtar væru upplýsingar, fréttir og tilkynningar til Eyjamanna og að þeir gætu náð saman í gegnum þennan þátt. Ég tók eftir að í annarri viku goss var farið að auglýsa þáttinn Eyjapistil skömmu eftir veðurfréttir kl. 22.15 á hverju kvöldi, en alltaf féll þátturinn niður.
Svo var það þriðjudaginn 6. febrúar í matartímanum að síminn hringir sem oftar og ég svaraði. Þar var þá Magnús H. Magnússon bæjarstjóri og heilsaði mér hógværlega og spyr: Viljið þið bræður koma fram í Eyjapistli með eitthvað efni. Ég varð harla glaður við, tók vel í málið og sagði jafnframt að ég ætti í fórum mínum heilmikið af upptökum, sem frjálst væri að nota. Magnús þakkaði kærlega fyrir og við kvöddumst.
Rétt tæpum klukkutíma síðar, svona um hálf tvöleytið hringir síminn aftur og enn varð ég fyrir svörum. Þar var þá Stefán Jónsson og ég bjóst við að hann ætlaði að ræða við mig um annað sem við höfðum í deiglunni, en það var nú aldeilis ekki. Stefán vindur sér beint að efninu og spyr: Hefur Magnús bæjarstjóri haft samband við ykkur? Ég játti því og Stefán hélt áfram Og hvað sagði hann? Ég sagði Stefáni það og þá varð ógnvænleg þögn í símann og maginn tók að herpast saman, ég hafði ekkert sofið í tæpa tvo sólarhringa bæði af áhyggum og amstri. Þá segir Stefán: Jæja, Magnús er svolítið ruglaður þessa dagana eins og raunar allir þið Vestmannaeyingar, en frá og með morgundeginum eigið þið bræður að sjá um fimmtán mínútna langan þátt í útvarpinu á hverjum einasta degi, sem heitir Eyjapistill. Ekki grípa frammí, það er búið að ákveða þetta og það er ekkert undanfæri, þetta verður enginn vandi, þið fáið þá hjálp sem þið þurfið. Þið skiptið þáttunum í nokkur efnisatriði, kveðjur, tilkynningar, fréttir og spjall og þetta verða sirka tveir tímar á dag, sem fara í þetta hjá ykkur.
Ég hrópa í símann Þú lýgur þessu Stefán. Hann svaraði: Þetta er ákveðið mál og þið mætið niður á Skúlagötu á sjöttu hæð klukkan eitt á morgun, sjáumst og svo skall símtólið á.
Ég henti símanum frá mér og hrópaði yfir Arnþór og mömmu hvað hefði gerst. Arnþór varð alveg frávita af angist eins og ég og við jusum úr okkur í smá tíma og móðir okkar tók þátt í þessari örvæntingu, en svo fórum við að hugsa málið. Ég trúði þessu ekki og þegar ég fór með vini mínum, Lárusi Sigurðssyni sem var ein mín mesta hjálparhella upp í Mosfellssveit að koma dóti fyrir í geymslu, sagði ég það sem hvern annan brandara að nú ætti ég frá og með morgundeginum að verða útvarpsmaður. Félagi minn hló sig máttlausan og við skemmtum okkur konunglega.
Vinna hófst svo við Eyjapistilinn daginn eftir þann 7. febrúar og við Arnþór urðum líklega landsfrægir á einni nóttu.
Hér er rétt að gera smá útúrdúr og koma með haldbæra skýringu á því af hverju við Arnþór vorum látnir taka þetta að okkur.
Eftir því, sem Stefán Jónsson sagði mér, fór hann ásamt þáverandi útvarpsráðsmanni, Stefáni Karlssyni út til Eyja á fund bæjarstjórnar Vestmannaeyja til þess að ræða hvernig útvarpið gæti komið til móts við Eyjamenn. Þá kviknaði hugmyndin að Eyjapistlunum, en það fannst enginn til þess að hafa umsjón með þeim. Stefán sagði það skipta öllu máli að fá einhverja, sem allir Eyjamenn þekktu og gætu haft samband við og nefndi okkur bræður. Eitthvað voru sumir bæjarstjórnarmenn í vafa um hvort við værum réttu mennirnir í þetta og töldu vafasamt að við myndum taka þetta að okkur. Stefán sagðist ábyrgjast að við skyldum gera þetta og hann gerði það svo að um munaði.
Fyrsti þátturinn var svo fluttur þann 7. febrúar. Stefán stjórnaði honum, skýrði tilganginn með þættinum og hverjir myndu standa að honum, en auk okkar hafði Gunnar Sigurmundsson prentari (Gunnar prent) tekið að sér efnisöflun. Arnþór sá svo um þáttinn þann 8. febrúar, en frá og með föstudeginum 9. febrúar kom ég inn í þáttinn, og við lýstum því yfir í galsaskap að loksins hefðu Vestmannaeyingar eignast sitt eigið, frjálsa útvarp.
Og auðvitað fórum við fljótlega yfir strikið. Rauðsokkur og margar kvenréttindakonur urðu að vonum alveg bálreiðar þegar við auglýstum eftir eiginkonum vestmannaeyinga til þess að vinna í mötuneyti sem komið var upp fyrir Eyjamenn í Hafnarbúðum í Reykjavík. Og svo sagði ég eitt sinn í blaðaviðtali frá mannlífinu í Eyjum. þar fengju margir kynlegir kvistir að lifa í samfélaginu óáreittir en þegar suður væri komið þá væri þetta fólk lokað inni á stofnunum.
Eyjapistill þótti mikil nýlunda á þeim tíma. Við lögðum mikla áherslu á að hafa yfirbragðið með léttu móti, við spjölluðum beint við hlustendur, lásum tilkynningar og spjölluðum um það sem var á seyði. Þá áttum við stundum til að útvarpa samtölum við hlustendur beint. Við vorum alltaf með segulbandstæki við símann og oft urðu samtölin mjög skemmtileg. Einnig vorum við með mörg viðtöl og reyndum að láta skemmtiefni fljóta með eftir því sem kostur var. Snældutækin voru nýlega komin á markað sem almenningseign. Við vorum fyrstir til að nota slík tæki við öflun viðtala og efnis fyrir Ríkisútvarpið. Þetta var að mörgu leyti miklu léttara þó að tóngæðin væru ef til vill ekki eins og skyldi. Tækið, sem við notuðum mest er nú komið á Byggðasafnið í Eyjum.
Stefán Jónsson sem kallaður var fréttamaður en starfaði þá sem dagskrárfulltrúi hjá Ríkisútvarpinu var okkar leiðbeinandi og mikið ósköp var hann góður kennari. Ég man þó eftir að einu sinni fauk verulega í mig við hann, en ég gat ekkert sagt, af því að hann hafði rétt fyrir sér. Svoleiðis var að í mínum fyrsta þætti hringdi ég til Hveragerðis í Sigurgeir Jónsson frá Þórlaugargerði kennara og hann sagði frá skólastarfinu þar og annars staðar austan fjalls. Ég var alveg sprengmontinn eftir þetta fyrsta viðtal, taldi þetta í hrifningarvímunni útvarpssímtal aldarinnar. Svo þegar samsetning þáttarins hófst, og þriðjungur samtalsins var búinn sagði Stefán stopp. Ég maldaði í móinn og sagði að það væri heilmikið eftir enn. Stefán sló krepptum hnefa í borðið og sagði með þjósti: Afgangurinn er bara kjaftæði, sem skiptir engu máli. Ég var búinn að segja þér að þátturinn á að vera samsettur af mörgum smáum atriðum, annars verður þetta hundleiðinlegt útvarpsefni.
Einn var sá liður, sem var daglegur í Eyjapistli til að byrja með, en það voru bænarorð, sem sóknarprestarnir, þeir séra Þorsteinn Lúter Jónsson og Karl Sigurbjörnsson fluttu eftir hvern þátt. Bænirnar voru flestar lesnar á segulband, en stundum fluttar beint. Við gárungarnir hjá útvarpinu kölluðum það handbænir, sem fluttar voru beint, en þær sem voru á segulbandi vélbænir. Séra Þorsteinn flutti fyrstu bænarorðin og mér er það mjög minnisstætt, þegar séra Karl mætti fyrst niður á Skúlagötu. Þannig var að mikill erill var hjá okkur fyrstu dagana og við vorum í herbergi með Stefáni Jónssyni. Það var einn daginn, sem við allir vorum á bóla kafi, Stefán að skipuleggja með okkur og talsvert rennirí af fólki, að inn kemur dökkhærður, ungur og lágvaxinn maður, mjög feiminn að sjá, og sest út í horn. Þegar hann hafði setið smá stund og við þremenningar búnir að ljúka okkur af, vindur Stefán sér að manninum og segir snöggt:
Hver ert þú?
Maðurinn svaraði hikandi Ég á að lesa hér.
Stefán svarar: Já einmitt og hvað.
Þá stamar ungi maðurinn. Ég, ég, er sko prestur.
Já svarar Stefán snöggt þú ert prestur, og hvað með það.
Ég er hann séra Karl.
Ýmsir fóru að rifja upp gamla hjátrú um að ekki mætti biskupssonur verða prestur í Vestmannaeyjum, en eins og menn vita, þá er séra Karl sonur Sigurbjörns Einarssonar sem var á þessum tíma biskup yfir Íslandi. Séra Þorsteinn Lúter Jónsson sem var sóknarprestur í Eyjum ásamt svo séra Karli kvað þennan orðróm niður, en þó var einn og einn að hringja eins og t.d. konan, sem hringdi og ráðlagði séra Karli að seja af sér svo að hörmungunum í Eyjum linnti. Ég dáðist að því hvernig séra Karl tók þessu af stakri þolinmæði og ljúfmennsku. Hann vann fljótlega hug og hjörtu Eyjamanna, sem honum kynntust.
Fljótlega tók Eyjapistillinn á sig ákveðið form. Við lásum iðulega margar tilkynningar um týnda muni og auglýsingar okkar eftir svörtum plastpokum urðu fleygar um land allt. Sumir spurðu af hverju Vestmannaeyingar hefðu notað svarta plastpoka, ekki venjulegar töskur eða umbúðir.
Mér eru margar tilkynningarnar í fersku minni. Einn auglýsti eftir svörtum plastpoka en þar voru í norsk biblía, sultukrukkur, rúmföt, lampi og hnífapör. Þá auglýsti ein kona eftir dýrindis postulínslampa, sem hafði farið með tilteknum báti á sínum tíma til Þorlákshafnar. Skipstjórinn á þeim báti hringdi miður sín í okkur og sagðist hafa sett lampann fram undir hvalbak og reynt að hlífa honum eftir föngum, en því miður hefði hann mölbrotnað og hann gæti skilað brotunum, fremur en engu.
Eftir að Eyjapistill hófst, auglýstum við ávallt heimasímann okkar. Segja má að síminn hafi gengið látlaust allan sólarhringinn fyrstu mánuðina. Menn skeyttu ekkert um hvort þeir hringdu að nóttu eða degi. Ég tók það ráð að hafa símann við rúmið og kveikt á útvarpinu, ef eitthvað kæmi upp á. Menn hringdu til að lýsa ósköpunum, en aðrir þurftu bara einhvern til að tala við. Ég man eftir konu, sem hringdi. Hún var uppi á landi í lítilli íbúð með mörg börn sín. Maðurinn hennar var úti í Eyjum og húsið þeirra var að fara undir hraun. Hún hágrét í símann og þrábað mig um að leggja það til að allar þessar Eyjakerlingar, sem væru uppi á landi yrðu skornar á háls, þetta þjónaði hvort sem er engum tilgangi. Arnþór tók við mörgum svipuðum símtölum frá fólki í algjörri örvæntingu og einu sinni hringdi kona í hann að austan rétt undir morgun og kvartaði yfir hlustunarskilyrðum Útvarpsins austur á landi.
Rauði krossinn og fleiri aðilar veittu ómetanlega hjálp ásamt prestunum okkar, sem höfðu mörgu að sinna.
Ég man líka eftir því að þegar við sögðum frá því að öllum börnum og unglingum væri boðið til Noregs á vegum Norsk Islandsk Samband og norska Rauða krossins, þá urðu viðbrögðin alveg ótrúleg. Norðmenn bjuggust við svo sem níu tugum barna, en um 900 börn gáfu sig fram. Þegar Norðmennirnir sáu listann, sátu þeir stjarfir í tíu mínútur, en svo sagði Hans Hök formaður norska Rauða krossins:
Jæja, eigum við ekki að fara að taka til starfa.
Þessar sumardvalir tókust með afbrigðum vel og þegar okkur Arnþóri ásamt þeim Magnúsi bæjarstjóra og Mörtu konu hans var boðið til Noregs að skoða dvalarstaði barnanna, gátum við ekki orða bundist af hrifningu. Ég man eftir að á leiðinni út voru í þotunni um 50 7 - 8 ára gamlir krakkar. Við Magnús og Marta fórum fram í og heilsuðum upp á þá. Mörg lítil höndin læddi sér í lófa okkar. Lítil stelpa spurði mig: Hvernig á maður að tala í Noregi?.
Ég man einnig eftir fjölda af söfnunum, sem efnt var til og þeim stórhug, sem allar Norðurlandaþjóðirnar sýndu í garð okkar Vestmannaeyinga. Svo urðu nokkrar skemmtilegar uppákomur, viljandi eða fyrir misskilning.
Í fyrrgreindri Noregsferð vorum við Arnþór eins og hverjir aðrir óbreyttir fréttamenn. Samt báru Norðmenn okkur á höndum sér, en þó kom dulítið atvik fyrir, sem eftir á er spaugilegt, en var ekkert fyndið á meðan á því stóð. Magnúsi og Mörtu ásamt fleirum var boðið í veislu í móttökuhúsi borgarstjórnarinnar í Osló á Holmenkollen. Við Arnþór flutum með. Þegar allir hafa heilsast innvirðulega, kemur einhver framámanneskja borgarstjórnarinnar til okkar, sennilega forsetinn, heilsar og spyr hverjir við séum. Við sögðum til okkar. Hún kvað okkur ekki vera á gestalistanum og það væri mjög óeðlilegt að fréttamönnum væri boðið í svona fína móttöku. Við reyndum að gera okkur ákaflega merkilega í augum hennar og útskýrðum hvaða mikilvæga hlutverki við gegndum og að hver einasti Íslendingur vissi hverjir við værum. Þegar konan áttaði sig á að við vorum heimsfrægir heima á Fróni, lét hún kyrrt liggja og okkur var vísað til sætis. Þarna átum við dýrindis hádegisverð. Það voru þrjú glös á borðinu, eitt með vatni, annað með hvítvíni og það þriðja með rauðvíni. Ég gerði allt vitlaust, drakk úr vatnsglasinu, þegar ég átti að drekka rauðvínið og fékk mér svo hvítvín, þegar ég átti að drekka vatn. Borðdaman mín var miður sín fyrir mína hönd og mér leið sárlega illa. Ekki veit ég hvernig Arnþóri reiddi af, en það hefur sennilega bjargað honum að hann sá ekki glóru og hans borðnautur hjálpaði honum, en ég reyndi eftir föngum að sýnast eins vel sjáandi og mér var unnt. Ósköp var ég feginn þegar þessari veislu lauk, en maturinn var frábær.
Það var þegar mesta hraunflóðið skall á bænum og færði allt í kaf austur í bæ. Páll bróðir hringdi í mig klukkan hálf sex um morgun og lýsti fyrir mér ástandinu. Hann sagði að hraunið þokaðist að jafnaði þrjá til fjóra metra á klukkustund. Daginn eftir hafði ég það eftir Páli að hraunið rynni um þrjá til fjóra metra að jafnaði á hverri mínútu. Að vonum hringdi Páll ekki par ánægður með ýkjur litla bróður og krafðist þess að ég leiðrétti þetta og bæði sig opinberlega afsökunar, af því að félagar hans úti í Eyjum höfðu gert mikið grín að sér fyrir vikið. Svo vel vildi til að maður úr Borgarfirðinum, Jóhannes Benjamínsson, hafði sent okkur vísu af því að ég hafði ættfært hann á einhvern hátt, sem honum líkaði ekki. Ég sá mig tilknúinn að biðja Pál afsökunar á þessum ýkjum mínum og fór svo með eftirfarandi vísu Jóhannesar:
Ekki batna bræður enn
blandna þræði spinna.
Hraðlygnari heiðursmenn
hægt er ekki að finna.
Þegar farið var með skipulögðum hætti að fara inn í hús og bjarga þaðan ýmsu og athuga um ástand þeirra, voru margir hræddir um að einhverju yrði stolið og fengum við margar upphringingar, þar sem menn báru sig upp við okkur. Einn þeirra, sem vann við þetta verk úti í Eyjum kom ásamt félögum sínum að húsi á Brekastígnum. Á útidyrahurðinni var eftirfarandi vísa:
Heyrið vinir, hlustið á.
Hér er heldur fátt að sjá.
Vatn er hér og hiti á
en hvorki vín né mat að fá.
Þegar svona miklir atburðir eins og gosið verða, komast á kreik þjóðsögur af ýmsu tagi. Skemmtileg saga barst okkur um hvernig allt þetta byrjaði, en staðreyndin er sú, að Óli Grens og Hjálmar Guðnason sáu gosið hefjast og er þetta til í samtali, sem Arnþór tók við Hjálmar í Eyjapistli á ársafmæli gossins. En þjóðsagan var eftirfarandi:
Það var sagt að gamall maður á Elliheimilinu, hann Mundi í Draumbæ, hefði haft á orði að hann ætlaði upp í kirkjugarð að vekja upp draug. Gætur voru hafðar á Munda, en hann slapp upp í kirkjugarð, gekk að leiði einu og hóf særingar. Þegar hann hafði þulið góða stund, heyrir hann drunur og sér eldbjarma bera yfir Helgafellið. Mundi hélt að nú hefði hann vakið upp þann vonda og fór á móti eldinum og reyndi að kveða hann niður, en úr þessu varð gos.
Þá sagði sagan að Púlli hefði fundið eitthvað á sér og viljað komast burt og eins er draumur Klöru Tryggvadóttur skýrt dæmi um fyrirboða.
Jón Ó. E. Jónsson sem vann um margra ára bil í vélsmiðjunni Magna sagði Arnþóri einu eða tveimur árum fyrir gos frá ókennilegum sprungumyndunum austur á Urðum og kvað mikið vera ef eitthvað kæmi ekki úr þeim.
Uppi á fastalandinu mynduðust byggðakjarnar Vestmannaeyinga, t.d. á Suðurnesjum, Selfossi, Hveragerði og víðar. Á Suðurnesjunum var stofnað félag Vestmannaeyinga, en formaður þess varð Eyþór Þórðarson frá Sléttabóli, en hann var löngu fluttur til lands. Þá stofnuðu Vestmannaeyingar sunnan heiða sem búsettir voru austan fjalls, félagið Heimþrá, en Kristján Georgsson í Klöpp var formaður þess. Það félag stóð fyrir heilmiklum borgarafundi í Selfossbíói, í marsmánuði, og kom fjöldi manns þangað.
Við Arnþór átturm mikið og gott samstarf við Eyþór Þórðarson formann Átthagafélags vestmannaeyinga á Suðurnesjum og varð það til þess að við fengum einu sinni ákúru frá útvarpsráði og yfirmönnum okkar hjá útvarpinu. Þannig var að Eyþór hringdi einn daginn og sagði okkur frá miklu Eyjaballi í Keflavík og bað okkur að auglýsa það vel í Eyjapistli. Við spurðum Eyþór hvort við mættum ekki taka símaviðtal við hann og féllst hann á það. Í samtalinu spurðum við um ballið og hvort allar veitingar yrðu þar. Eyþór sagði það ekki vera, en það gerði ekkert til þótt menn tækju smá brjóstbirtu með sér og það yrði engin athugasemd gerð þótt annar brjóstvasinn bungaði svolítið út. Þetta fór að vonum mjög fyrir brjóstið á yfirstjórn útvarps. Við vorum þekktir fyrir að láta flest vaða og tókum ekkert eða lítið tillit til þeirra reglna, sem giltu hjá útvarpinu um orðsins list, enda álitum við Eyjapistil útvarp Vestmannaeyinga. Þannig rak Sigmund bakara í Magnúsarbakaríi í rogastans, þegar hann hringdi í Auglýsingadeild útvarpsins og vildi fá birta eftirfarandi auglýsingu:
Frá Magnúsarbakaríi Vestmannaeyjum: Opnum eftir mikla hreinsun á vikri og skít. Magnúsarbakarí.
Auglýsingadeildin vildi ekki birta þetta orðrétt og Simmi hringdi bálvondur í Arnþór og kvartaði. Að sjálfsögðu birti Arnþór auglýsinguna orðrétta. Fjölmargir voru iðnir að leggja okkur lið og gæti ég minnst margra. Ég minnist einna helst hans Hjörleifs Hallgríms í Bláfelli, sem flutti til Akureyrar. Hann sendi frábærar fréttir þaðan og viðtöl. Þá varð Árni Sigfússon núverandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ fréttaritari Eyjapistils í Eyjum í ársbyrjun 1974 og allt til þess að þættirnir hættu á dagskrá Ríkisútvarpsins.
En einn maður varð aðstoðarmaður minn úti í Eyjum í sjálfboðavinnu og ómetanleg hjálparhella. Lárus Sigurðsson sem nefndur var fyrr til sögunnar. Við vinirnir fórum einu sinni til Eyja með herjólfi. Þá þurfti að hafa sérstakan passa til þess að fá landgönguleyfi. Ég hafði þennan passa en Lárus ekki. Þá bar einn bróður minn að, kippti Lárusi af landganginum og upp á bryggju og segir:
;Lárus, hann er ekkert hér og hefur aldrei komið hingað.
Sem betur fer var ekkert veður gert út af þessu og Lárus fékk landgöngupassann eins og aðrir sem áttu brýnt erindi til Eyja.
Við vorum nokkuð þekktir fyrir að ganga um með þung tæki á öxlunum. Mér var sögð sú saga af mér að ef mig vantaði far á milli húsa, hafi ég gengið til manna, heilsað og sagðist ætla að taka við þá viðtal, en hvort þeir myndu ekki vilja skutla mér smá spöl fyrst.
Einu sinni hittum við Lárus afar skemmtilegan mann, Súlla Johnsen. Súlli var viðloðandi m. A. Hraunhitaveituna sem komið var á fót og sá um gasmælingar í húsum. Súlli sagði okkur að hann notaði sérstakar túpur við gosmælingarnar en þær voru svo dýrar að þeir gosmælingarmenn urðu að spara þær. Þá fann Súlli út að þegar draslið milli fótanna væri farið að hitna ískyggilega væri gasið of mikið. En hann sagðist eiga von á konunni sinni þá um kvöldið og nú væri að vita hvort allt virkaði. Þessu samtali var útvarpað í fréttaauka Útvarpsins ásamt nákvæmri lýsingu á gasmælingum og hraunhitaveitunni.
Ég gæti haldið áfram að rifja upp minningar frá þessum tímum, en mál er að linni.
Eyjapistlarnir voru á dagskrá Ríkisútvarpsins hvern einasta dag frá 7. febrúar 1973 og fram í byrjun júní. Þá fengum við frí á mánudögum. Frá 1. október voru pistlarnir fluttir tvisvar í viku og frá því í febrúar 1974 voru þeir einu sinni í viku.
Þegar allt fór að komast í eðlilegt horf úti í Eyjum, þótti ekki eins mikil þörf á þáttunum og áður. Reyndar tók gerð þeirra miklu lengri tíma en upphaflega var áætlað. Ég vann við þá í nær fullu starfi, ofan á annað brauðstrit, fór að heiman um hálf átta á morgnana og kom heim undir miðnætti, auk þess sem ég var margar helgar úti í Eyjum að afla efnis. Á tímabili tók Arnþór aðeins minni þátt í þessari vinnu, hann var á fullu í Háskólanum.
Síðasti þátturinn var svo fluttur þann 25. mars 1974 og þar með lauk fyrsta landshlutaútvarpi á Íslandi.
Mér var þungt fyrir brjósti þegar ég stóð upp frá þeim þætti. Það skapaðist mikið tómarúm hjá mér og einhvern veginn fannst mér ákveðið skeið runnið á enda, sem mikil eftirsjá væri að.
Eyjapistlarnir urðu alls 261 talsins. Ef þeir hefðu allir varveist, tæki um 90 klst. að hlusta á þá. Þess má til gamans geta að rúmlega 120 kílómetrar af segulböndum fóru í að gera þættina. Alls eru varðveittir 81 af 260 þáttum en hjjá Ríkisútvarpinu hafa varðveist rúmlega 50 þættir. Allir eru þeir nú einnig til í Skjalasafni Vestmannaeyja, ásamt flestum þeim bréfum sem okkur bárust. Nú hafa eyjapistlarnir verið færðir á stafrænt form og verða innan skamms gerðir aðgengilegir á vefnum. Einnig er búið að efnistaka þættina. Það var nokkuð tímafrekt verk bæði að afrita þá og efnistaka. Leitað var styrkja til þessa verks og veitti Sigtryggur Helgason fyrrum forstjóri Brimborgar 100.000 króna styrk til verksins. Jafn há upphæð fékkst frá Menningar og tómstundaráði Vestmannaeyjabæjar. Kann ég þessum aðilum miklar þakkir fyrir.
Á meðan á gerð Eyjapistlanna stóð, áttum við umsjónarmenn Arnþór og Gísli ákaflega vinsamleg samskipti við alla þá, sem höfðu samband við okkur og við náðum til. Líklega má áætla að um 750 manns hafi komið fram í þáttunum. Ef til vill munu þeir þættir, sem til eru, einhvern tímann þykja góð heimild um mannlífið á meðan á gosinu stóð, og hitt er víst, að með gerð þáttanna og öllu því sem þeim fylgdi dýpkuðu og styrktust þær rætur, sem ég á í Vestmannaeyjum.


eru mannorðsþjófar orðnir hvalavinir?

Þegar ég fletti mbl-vefnum í morgun rakst ég á frétt þess efnis að fólk í hvalaskoðunarbátnum Eldingunni hefði hindrað hvalveiðar í gær.
Tekið var fram að um borð í Eldingunni hafi verið fólk frá Alþjóða dýraverndunarsjóðnum sem sagðist ætla að ná mynd af hvalveiðunum og var Sigursteinn Másson þar í forsvari.
Líklega er Sigursteinn þessi fyrrum formaður Geðhjálpar og síðar Öryrkjabandalags Íslands.
Það er mörgum í fersku minni hvernig Sigursteinn kom fram við þáverandi framkvæmdastjóra Öryrkjabandalagsins þegar hann hrakti hann fyrirvaralaust úr starfi og gerði það með þeim hætti að mannorði hans var stefnt í voða og í rauninni má segja að um drög að mannorðsmorði hafi verið að ræða.
Svo hraktist Sigursteinn frá Öryrkjabandalaginu og það var athyglisvert að á þeim tveimur aðalfundum sem hann stýrði náði hann engum málum fram. Slíkt var vantraustið á honum innan Öryrkjabandalagsins.
Nú virðist Sigursteinn hafa fundið sér nýjan vettvang sem friðarspillirog má í því sambandi minnast orða Skúla Magnússonar landfógeta sem bjó í Viðey og lét byggja þar kirkju og reisa hina glæsilegu Viðeyjarstofu:
Allt verður Íslands óhamingju að vopni

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband